Þjónustuskilmálar og afgreiðslutími pantana

Ekran ehf. – Klettagörðum 19 – 104 Reykjavík – Sími 530 8500 – Vsk nr. 63620 

ÚTKEYRSLA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU 

Pantanir sem berast í gegnum vefverslun fyrir kl. 24:00 verða afgreiddar næsta virka dag. Pantanir sem berast í gegnum söludeild eða tölvupóst  þurfa að berast fyrir kl. 16:00 til að vera afgreiddar næsta virka dag.  

Dagvöru pantanir* (ferskvöru) þurfa að  að berast fyrir kl. 12:00 til að vera afgreidd næsta virka dag.  

Allar pantanir sem eru yfir 25.000 kr. án vsk. eru sendar á kostnað Ekrunnar. 

ÚTKEYRSLA Á AKUREYRI 

Pantanir þurfa að berast fyrir kl. 15:00 til að vera afgreiddar næsta virka dag.  

Dagvöru* pantanir (ferskvöru) þurfa að berast fyrir kl. 11:00 til að vera afgreidd næsta virka dag. 

Allar pantanir sem eru yfir 25.000 kr. án vsk. eru sendar á kostnað Ekrunnar. 

ÚTKEYRSLA Á LANDSBYGGÐINNI 

Ekran sendir allar vörur á landsbyggðina með Flytjanda. Allar pantanir sem eru yfir 25.000 kr. án vsk. eru sendar á kostnað Ekrunnar. Vara er afhent í næstu vöruafgreiðslu Flytjanda. Ef pöntun nær ekki tilsettu lágmarki leggst sendingarkostnaður á pöntunum samkvæmt verðskrá Flytjanda.  

Allar pantanir þurfa að berast daginn fyrir brottför. Flytjandi gefur sér 1-2 daga til afhendingar, áætlun flytjanda má finna hér, Afgreiðslustaðir og ferðaáætlun | Eimskip 

ÚTKEYRSLA Á SELFOSS, HVERAGERÐI, ÞORLÁKSHÖFN, EYRARBAKKA, STOKKSEYRI 

Auk þess að fá vörur frá Ekrunni með Flytjanda, þá dreifir Ekran vörum á ofangreinda staði á Suðurlandi á miðvikudögum og föstudögum.  

Dreifing á miðvikudögum og föstudögum: 

Pantanir þurfa að berast fyrir kl. 12:00 á þriðjudegi til að vera afgreiddar á miðvikudegi.  

Pantanir þurfa að berast fyrir kl. 12:00 á fimmtudegi til að vera afgreiddar á föstudegi.  

Allar pantanir sem eru yfir 25.000 kr. án vsk. eru sendar á kostnað Ekrunnar.  

SÓTTAR PANTANIR 

Ekkert þjónustugjald er tekið fyrir pantanir sem sóttar eru í vöruhús.  

ANNAР

Afhendingar á vörum fara fram á virkum dögum á tímabilinu milli kl. 7:00 – 16:00. Vöruafhendingar til viðskiptavina fer almennt ekki fram um helgar og á lögbundnum frídögum. 

Ef viðskiptavinur er í vanskilum, þarf greiðsla útistandandi reikninga að berast fyrir kl. 11:00 daginn fyrir skilgreindan afhendingardag til að Ekran geti afhent viðskiptavini vörur. 

DAGVÖRUR 

Verð á vörum frá þriðja aðila (dagvörur*) eru breytileg frá degi til dags. Vörurnar eru háðar verðum/skilmálum birgjans og eru verðin á heimasíðu Ekrunnar einungis til viðmiðunar. Endanlegt verð birtist á reikningi. Ef pöntuð dagvara er ekki til hjá þriðja aðila mun fyrirtækið leitast við að bjóða staðkvæmdavöru.
*Með dagvöru er átt við ferskvöru sem pöntuð er frá þriðja aðila. 

Dagvöru / ferskvöru / frystivöru er ekki hægt að skila. 

Vörur frá þriðja aðila:
Bananar
Kjarnafæði
Mjólkursamsalan
Hafið
Norðanfiskur 

VÖRUSKIL 

Ef skila á vöru (hver sem ástæðan er), skal kaupandi koma athugasemdum til skila til starfsmanna Ekrunnar innan 48 klst frá móttöku vöru. 

Gallaðar eða rangt afgreiddar vörur utan höfuðborgarsvæðisins og Akureyrar skulu endursendar með Flytjanda. Kreditreikningur er gerður þegar varan kemur í hús. 

Hafi vara skemmst í meðhöndlun starfsmanna þriðja aðila (t.d. flutningsaðila) eða misræmi er á milli fjölda afhentra vara og vörufylgisskjali, þarf móttakandi vöru að gera athugasemd við flutningsaðila við vöruafhendingu. 

Dagvöru / ferskvöru / frystivöru (mjókurvörur, ávextir, grænmeti, brauðmeti og kjöt) er ekki hægt að skila. 

REIKNINGSVIÐSKIPTI 

Hafi verið samið um annan greiðslumáta en staðgreiðslu eða greiðslur með greiðslukorti skal Ekran senda út reikning fyrir selda vöru. Gjalddagi reiknings fer eftir viðskiptaskilmálum á milli Ekrunnar og viðskipavina sinna. Reiknast dráttarvextir á reikninga sem greiddir eru eftir eindaga í samræmi við lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Við vanskil reikninga reiknast dráttarvextir frá eindaga til greiðsludags. Athugasemdir vegna útgefinna reikninga skulu berast fjármálasviði Ekrunar innan 10 daga frá útgáfudegi reiknings. Verði ágreiningur um fjárhæð reiknings er viðskiptamanni einungis heimilt að bíða með greiðslu á þeirri fjárhæð sem raunverulegur ágreiningur er um. 

Stór hluti af vörusafni Ekrunnar er afgreitt og reiknisfært eftir vigt. Ekran leytast eftir því að afgreiða sem næst þeirri þyngd sem viðskiptavinur pantar. Endanlegur reikningur miðast ávallt við endanlega þynd vörunnar við afgreiðslu. 

350 kr. seðilgjald leggst á alla greiðsluseðla. 

LÖG OG VARNARÞING 

Íslensk lög skulu gilda um viðskiptaskilmála þessa, samninga og eftir atvikum tilboð sem Ekran gerir við viðskiptavini sína. Ágreining um framkvæmd samnings skulu Ekran og viðskiptavinur leitast við að leysa með samkomulagi. Ef ekki næst samkomulag skulu ágreiningsmál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Heimilt er að vísa ágreiningi til gerðardóms ef báðir aðilar eru því samþykkir og skulu lög nr. 53/1989 um samningsbundna gerðardóma gilda um málsmeðferð fyrir gerðardómi.